Þessi tafla sýnir lýsigögn fyrir þann mælikvarða sem er fáanlegur úr íslenskum gögnum og er líkastur alþjóðlegum heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu þjóðanna. Vinsamlegast takið eftir að jafnvel þótt alþjóðlegur heimsmarkmiðamælikvarði Sameinuðu þjóðanna sé aðgengilegur úr íslenskum gögnum, ber að hafa þessa töflu til hliðsjónar fyrir upplýsingar um innlenda aðferðarfræði og önnur íslensk lýsigögn
Birtur mælikvarði |
Vaxtarhraði í útgjöldum heimila og tekjum á íbúa eftir tekjuhópum. |
---|---|
Lýsing mælikvarða |
Gögn um útgjöld eru niðurstöður úr rannsókn á útgjöldum heimila sem framkvæmd hefur verið óslitið frá árinu 2000. Niðurstöðurnar eru meðaltal þriggja ára á verðlagi síðasta ársins, fyrir utan að á tímabilinu 2011-2016 eru niðurstöðurnar byggðar á fjögurra ára meðaltali. Er það gert til að bæta niðurstöður vegna dræmrar svörunar í rannsókninni á tímabilinu 2013-2015. Gögn um tekjur eru fengnar úr lífskjararannsókn, en upplýsingar um hana má finna hér |
Landfræðileg þekja |
Íslandi |
Mælieining |
Hundraðshlutar (%) |
Athugasemdir og takmarkanir |
Þessi mælikvarði er notaður sem nálgun á heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu Þjóðanna. Þar sem því má við komast er unnið að því að finna eða þróa íslensk gögn til að uppfylla forskrift Sameinuðu Þjóðanna. Þessi mælikvarði var fundinn í samstarfi við sérfræðinga á þessu sviði. |