Matvæla- og landbúnaðarstofunun Sameinuðu Þjóðanna (FAO) birtir niðurstöður líkanareikninga um þennan mælikvarða fyrir Ísland.

Samkvæmt niðurstöðum FAO hefur algengi vannæringar á Íslandi verið innan við 2.5% öll ár milli 2000 og 2020.

Þessi mælikvarði er notaður sem nálgun á heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu Þjóðanna. Þar sem því má við komast er unnið að því að finna eða þróa íslensk gögn til að uppfylla forskrift Sameinuðu Þjóðanna. Þessi mælikvarði var fundinn í samstarfi við sérfræðinga á þessu sviði.

Þessi tafla sýnir lýsigögn fyrir þann mælikvarða sem er fáanlegur úr íslenskum gögnum og er líkastur alþjóðlegum heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu þjóðanna. Vinsamlegast takið eftir að jafnvel þótt alþjóðlegur heimsmarkmiðamælikvarði Sameinuðu þjóðanna sé aðgengilegur úr íslenskum gögnum, ber að hafa þessa töflu til hliðsjónar fyrir upplýsingar um innlenda aðferðarfræði og önnur íslensk lýsigögn

Þessi tafla sýnir lýsigögn fyrir heimsmarkmiðamælikvarða eins og þeir eru skilgreindir af tölfræðistofnun Sameinuðu þjóðanna. Fullbúin alþjóðleg lýsigögn eru fáanleg frá tölfræðistofnun Sameinuðu þjóðanna

Aftur upp