Þessi tafla sýnir lýsigögn fyrir þann mælikvarða sem er fáanlegur úr íslenskum gögnum og er líkastur alþjóðlegum heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu þjóðanna. Vinsamlegast takið eftir að jafnvel þótt alþjóðlegur heimsmarkmiðamælikvarði Sameinuðu þjóðanna sé aðgengilegur úr íslenskum gögnum, ber að hafa þessa töflu til hliðsjónar fyrir upplýsingar um innlenda aðferðarfræði og önnur íslensk lýsigögn
Birtur mælikvarði |
Hlutfall skóla með aðgengi að a) rafmagni, b) netinu til kennslu, c) tölvum til kennslu, d) aðlöguðum innviðum og námsgögnum fyrir fatlaða nemendur, e) drykkjarhæfu vatni, f) aðskilinni salernisaðstöðu fyrir kynin og g) handþvottaaðstöðu (sbr. skilgreiningar WASH-vísisins). |
---|---|
Landfræðileg þekja |
Ísland |
Mælieining |
Hundraðshlutar (%) |
Útreikningar |
Engir útreikningar voru framkvæmdir við gagnasöfnun á þessum mælikvarða þar sem viðeigandi gögn voru til staðar. Varðandi innsæi í mögulega útreikninga gagnaveitenda er vísað í frumheimildir. |
Athugasemdir og takmarkanir |
Þessi mælikvarði er notaður sem nálgun á heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu Þjóðanna. Þar sem því má við komast er unnið að því að finna eða þróa íslensk gögn til að uppfylla forskrift Sameinuðu Þjóðanna. Þessi mælikvarði var fundinn í samstarfi við sérfræðinga á þessu sviði. |