Undirmarkmið og mælikvarðar
Undirmarkmið 6.1
Eigi síðar en árið 2030 standi öllum til boða heilnæmt drykkjarvatn á viðráðanlegu verði hvar sem er í heiminum
Mælikvarði 6.1.1
Undirmarkmið 6.2
Eigi síðar en árið 2030 hafi allir jafnan 126 aðgang að fullnægjandi hreinlætisaðstöðu og enginn þurfi að ganga örna sinna utan dyra. Í þessu tilliti verði sérstaklega hugað að þörfum kvenna og stúlkna og þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu.
Mælikvarði 6.2.1
Undirmarkmið 6.3
Eigi síðar en árið 2030 verði vatnsgæði aukin með því að draga úr mengun, útiloka óæskilega sorplosun og lágmarka losun hættulegra efna og efnablandna. Hlutfall óunnins skólps og frárennslisvatns verði minnkað um helming og endurvinnsla og örugg endurnýting aukin til muna um heim allan.
Mælikvarði 6.3.1
Mælikvarði 6.3.2
Undirmarkmið 6.4
Eigi síðar en árið 2030 verði vatn nýtt mun betur á öllum sviðum. Sjálfbær vatnsnotkun verði tryggð í því skyni að koma í veg fyrir vatnsskort. Jafnframt verði dregið verulega úr fjölda þeirra sem þjást af vatnsskorti.
Mælikvarði 6.4.1
Undirmarkmið 6.5
Eigi síðar en árið 2030 verði stjórnun vatnsauðlinda samþætt á öllum sviðum, meðal annars með samstarfi yfir landamæri eftir því sem við á.
Mælikvarði 6.5.1
Mælikvarði 6.5.2
Undirmarkmið 6.6
Eigi síðar en árið 2020 verði unnið að úrræðum til að vernda og endurheimta vatnstengd vistkerfi, þ.m.t. fjalllendi, skóga, votlendi, ár, grunnvatnsból og vötn.
Mælikvarði 6.6.1
Undirmarkmið 6.a
Eigi síðar en árið 2030 nái alþjóðleg samvinna og stuðningur að efla starfsemi og áætlanir þróunarlanda sem tengjast vatni og hreinlætisaðgerðum, þ.m.t. vatnsöflun, afsöltun, vatnsnýtingu, hreinsun skólps og frárennslisvatns, endurvinnslu og tækni til endurnýtingar.
Mælikvarði 6.a.1
Undirmarkmið 6.b
Stutt verði við byggðarlög til að bæta vatnsstjórnun og hreinlæti.