Þessi tafla sýnir lýsigögn fyrir þann mælikvarða sem er fáanlegur úr íslenskum gögnum og er líkastur alþjóðlegum heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu þjóðanna. Vinsamlegast takið eftir að jafnvel þótt alþjóðlegur heimsmarkmiðamælikvarði Sameinuðu þjóðanna sé aðgengilegur úr íslenskum gögnum, ber að hafa þessa töflu til hliðsjónar fyrir upplýsingar um innlenda aðferðarfræði og önnur íslensk lýsigögn
Birtur mælikvarði |
Fjöldi látinna barna undir 5 ára aldri á hver 1.000 lifandi fædd börn. |
---|---|
Lýsing mælikvarða |
Fjöldi látinna barna undir 5 ára aldri á hver 1.000 lifandi fædd börn. |
Landfræðileg þekja |
Ísland |
Mælieining |
Tíðni á hver 1.000 fædd börn |
Skilgreiningar |
Dánartíðni barna undir 5 ára aldri er skilgreint sem líkurnar á því að barn, sem fæðist á ákveðnu ári, látist áður en það nær fimm ára aldri, miðað við 1.000 lifandi fædd börn. |
Útreikningar |
Líkurnar á að barn, sem fætt er á ákveðnu ári, látist áður en það nær fimm ára aldri eru reiknaðar með því að deila fjölda látinna barna undir fimm ára aldri á árinu með fjölda lifandi fæddra barna fyrir sama ár. |
Athugasemdir og takmarkanir |
Gögn fylgja forskrift Sameinuðu Þjóðanna fyrir þennan mælikvarða. Þessi mælikvarði var fundinn í samstarfi við sérfræðinga á þessu sviði. |