Þessi tafla sýnir lýsigögn fyrir þann mælikvarða sem er fáanlegur úr íslenskum gögnum og er líkastur alþjóðlegum heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu þjóðanna. Vinsamlegast takið eftir að jafnvel þótt alþjóðlegur heimsmarkmiðamælikvarði Sameinuðu þjóðanna sé aðgengilegur úr íslenskum gögnum, ber að hafa þessa töflu til hliðsjónar fyrir upplýsingar um innlenda aðferðarfræði og önnur íslensk lýsigögn
Birtur mælikvarði |
Hlutfall íbúa, 18 ára og eldri, sem reykja sígarettur |
---|---|
Lýsing mælikvarða |
Hlutfall íbúa, 18 ára og eldri, sem reykja sígarettur daglega eða sjaldnar en daglega, eftir kyni. |
Landfræðileg þekja |
Ísland |
Mælieining |
Hundraðshlutar (%) |
Athugasemdir og takmarkanir |
Gögn fyrir ítarlegri sundurliðun eru aðgengileg í heimild 1, m.a. gögn um fjölda íbúa sem reykja eftir kyni og aldurshópum. Þessi mælikvarði er notaður sem nálgun á heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu Þjóðanna. Þar sem því má við komast er unnið að því að finna eða þróa íslensk gögn til að uppfylla forskrift Sameinuðu Þjóðanna. Þessi mælikvarði var fundinn í samstarfi við sérfræðinga á þessu sviði. |