Þessi tafla sýnir lýsigögn fyrir þann mælikvarða sem er fáanlegur úr íslenskum gögnum og er líkastur alþjóðlegum heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu þjóðanna. Vinsamlegast takið eftir að jafnvel þótt alþjóðlegur heimsmarkmiðamælikvarði Sameinuðu þjóðanna sé aðgengilegur úr íslenskum gögnum, ber að hafa þessa töflu til hliðsjónar fyrir upplýsingar um innlenda aðferðarfræði og önnur íslensk lýsigögn
Landfræðileg þekja |
Ísland |
---|---|
Mælieining |
Hundraðshlutar (%) |
Skilgreiningar |
Verg þjóðarframleiðsla (GDP) er megin mælikvarði á stærð hagkerfis og stendur fyrir heildar virði allra vara og þjónustu sem framleidd eru á ákveðnu tímabili. |
Útreikningar |
Raunveruleg verg þjóðarframleiðsla á hvern vinnandi einstakling = (GDP á föstu verðlagi / Heildarfjöldi starfandi einstaklinga) þar sem teljari og nefnari vísa til sama tímabils, t.d. sama almanaksár. |
Athugasemdir og takmarkanir |
Gögn fylgja forskrift Sameinuðu Þjóðanna fyrir þennan mælikvarða. Þessi mælikvarði var fundinn í samstarfi við sérfræðinga á þessu sviði. |