Þessi tafla sýnir lýsigögn fyrir þann mælikvarða sem er fáanlegur úr íslenskum gögnum og er líkastur alþjóðlegum heimsmarkmiðamælikvarða Sameinuðu þjóðanna. Vinsamlegast takið eftir að jafnvel þótt alþjóðlegur heimsmarkmiðamælikvarði Sameinuðu þjóðanna sé aðgengilegur úr íslenskum gögnum, ber að hafa þessa töflu til hliðsjónar fyrir upplýsingar um innlenda aðferðarfræði og önnur íslensk lýsigögn
Birtur mælikvarði |
Meðaltímakaup starfandi karla og kvenna, eftir starfi. |
---|---|
Landfræðileg þekja |
Ísland |
Mælieining |
ISK |
Skilgreiningar |
Útreikningur á óleiðréttum launamun kynjanna byggir á aðferðarfræði Structure of Earnings Survey hagstofu Evrópusambandins Eurostat. Við útreikning á óleiðréttum launamun kynjanna er stuðst við mánaðarlaun í októbermánuði á hverju ári. Mánaðarlaun byggja á föstum reglulegum greiðslum auk yfirvinnu. Óreglulegar greiðslur sem falla til í október eru undanskildar í útreikningum. Þessi skilgreining er sambærileg við regluleg heildarlaun í öðrum útgáfum Hagstofu Íslands. |
Athugasemdir og takmarkanir |
Gögn fylgja forskrift Sameinuðu Þjóðanna fyrir þennan mælikvarða. Þessi mælikvarði var fundinn í samstarfi við sérfræðinga í málefninu. |