Undirmarkmið og mælikvarðar
Undirmarkmið 15.1
Eigi síðar en árið 2020 verði vistkerfi á landi og í ferskvatni vernduð og stuðlað að sjálfbærri nýtingu þeirra og endurheimt, einkum skóga, votlendis, fjalllendis og þurrkasvæða, í samræmi við skuldbindingar samkvæmt alþjóðasamningum.
Mælikvarði 15.1.1
Mælikvarði 15.1.2
Undirmarkmið 15.2
Eigi síðar en árið 2020 hafi tekist að efla sjálfbærni skóga af öllu tagi, stöðva skógareyðingu, endurheimta hnignandi skóga og auka verulega nýskógrækt og endurrækta skóga um allan heim.
Mælikvarði 15.2.1
Undirmarkmið 15.3
Eigi síðar en árið 2030 verði barist gegn eyðimerkurmyndun, leitast við að endurheimta hnignandi land og jarðveg, þ.m.t. land sem er raskað af eyðimerkurmyndun, þurrkum og flóðum, og unnið að því að koma á jafnvægi milli hnignunar og endurheimtar lands í heiminum.
Mælikvarði 15.3.1
Undirmarkmið 15.4
Eigi síðar en árið 2030 verði vistkerfi í fjalllendi vernduð, meðal annars líffræðileg fjölbreytni þeirra, í því skyni að njóta ávinnings af nýtingu þeirra, sem er meginhugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.
Mælikvarði 15.4.1
Mælikvarði 15.4.2
Undirmarkmið 15.5
Gripið verði til brýnna og nauðsynlegra aðgerða til að sporna við hnignun náttúrulegra búsvæða og líffræðilegrar fjölbreytni. Eigi síðar en árið 2020 verði gripið til aðgerða til að vernda tegundir í bráðri hættu og koma í veg fyrir útrýmingu þeirra.
Mælikvarði 15.5.1
Undirmarkmið 15.6
Stuðlað verði að sanngjarnri og jafnri skiptingu ávinnings af nýtingu erfðaauðlinda og eðlilegum aðgangi að slíkum auðlindum samkvæmt alþjóðlegum samþykktum.
Mælikvarði 15.6.1
Undirmarkmið 15.7
Gripið verði til bráðaaðgerða til að binda enda á veiðiþjófnað og ólögleg viðskipti með vernduð dýr og plöntur og reistar skorður við eftirspurn og framboði á ólöglegum afurðum villtra dýra.
Mælikvarði 15.7.1
Undirmarkmið 15.8
Gripið verði til ráðstafana eigi síðar en árið 2020 til að koma í veg fyrir aðflutning ágengra, framandi tegunda og dregið verulega úr áhrifum þeirra á vistkerfi á landi og í vatni. Tegundunum efst á lista verði útrýmt eða útbreiðslu þeirra eða fjölgun stýrt.
Mælikvarði 15.8.1
Undirmarkmið 15.9
Eigi síðar en árið 2020 verði tekið tillit til gildis vistkerfis og líffræðilegrar fjölbreytni við gerð lands- og svæðisáætlana og í öllu þróunarferli, skýrslugerðum og aðgerðum til að draga úr fátækt.
Undirmarkmið 15.a
Kallað verði eftir fjármagni hvarvetna í því skyni að vernda líffræðilega fjölbreytni og vistkerfi og nýta á sjálfbæran hátt.
Mælikvarði 15.a.1
Undirmarkmið 15.b
Kallað verði eftir auknum úrræðum á öllum sviðum í því skyni að gera skógarauðlindir sjálfbærar og skapa hvata fyrir þróunarlöndin til að taka upp slíka stjórnun, meðal annars verndun og endurrækt.
Mælikvarði 15.b.1
Undirmarkmið 15.c
Efldur verði stuðningur á heimsvísu til að berjast gegn veiðiþjófnaði og ólöglegum viðskiptum með vernduð dýr og plöntur, meðal annars verði leitað leiða fyrir íbúa hinna ýmsu byggðarlaga til að afla sér lífsviðurværis á sjálfbæran hátt.