Undirmarkmið og mælikvarðar
Undirmarkmið 11.1
Eigi síðar en árið 2030 geti allir orðið sér úti um fullnægjandi og öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði, fátækrahverfi verði endurbætt og grunnþjónusta standi öllum til boða.
Mælikvarði 11.1.1
Undirmarkmið 11.2
Eigi síðar en árið 2030 geti allir ferðast með öruggum sjálfbærum samgöngutækjum á viðráðanlegu verði á bættu vegakerfi. Lögð verði áhersla á betri almenningssamgöngur sem taka mið af fólki í viðkvæmri stöðu, konum, börnum, fötluðu fólki og öldruðum.
Mælikvarði 11.2.1
Undirmarkmið 11.3
Eigi síðar en árið 2030 verði fjölgun í þéttbýli sjálfbær og íbúar alls staðar í heiminum taki meiri þátt í skipulagsmálum og samkomulagi um sjálfbærni.
Mælikvarði 11.3.1
Mælikvarði 11.3.2
Undirmarkmið 11.4
Blásið til sóknar til þess að vernda og tryggja náttúru- og menningararfleifð heimsins.
Undirmarkmið 11.5
Eigi síðar en árið 2030 dragi úr fjölda þeirra sem deyja í hamförum og þeirra sem bíða skaða af þeim völdum. Dregið verði úr beinu efnahagslegu tjóni af völdum hamfara, í hlutfalli af vergri landsframleiðslu í alþjóðlegum samanburði, þar á meðal vatnstjóni, og áhersla lögð á að vernda fátæka og fólk í viðkvæmri stöðu.
Mælikvarði 11.5.1
Mælikvarði 11.5.3
Undirmarkmið 11.6
Eigi síðar en árið 2030 verði dregið úr skaðlegum umhverfisáhrifum í borgum, meðal annars með því að bæta loftgæði og meðhöndlun úrgangs.
Mælikvarði 11.6.2
Undirmarkmið 11.7
Eigi síðar en árið 2030 verði græn svæði gerð örugg og aðgengileg fyrir almenning, einkum konur og börn, aldraða og fatlað fólk.
Mælikvarði 11.7.1
Mælikvarði 11.7.2
Undirmarkmið 11.a
Stutt verði við jákvæð efnahags-, félags- og umhverfisleg tengsl milli þéttbýlis, þéttbýlla svæða í borgarjaðri og dreifbýlissvæða með því að styrkja áætlanir um byggðaþróun á landsvísu og innan svæða.
Mælikvarði 11.a.1
Undirmarkmið 11.b
Eigi síðar en árið 2020 hafi borgum og íbúðarsvæðum fjölgað þar sem áætlanir og stefnumál eru samþætt og miða að aðkomu allra, auðlindanýting verði betri, dregið hafi úr skaðsemi af völdum loftslagsbreytinga og forvarnir gegn hamförum hafi verið efldar. Útbúin verði heildræn áhættustýring vegna hvers kyns hamfara í samræmi við Sendairammaáætlunina 2015–2030 og henni framfylgt.